Sunday, April 14, 2013

Kominn tími á nýju bloggi.
Mars var alveg troð fullur af atburðum sem ég hefði aldrei haldið að ég myndi gera! Óhætt að segja að Mars var uppáhaldsmánuðinn hingað til.
      Ég fór aðeins eina viku í skólan því 9.mars fór ég til Hawaii með vinkonu minni frá Danmörku sem býr í Clearmont. Fjöldskyldur okkar ákvöðu að skiptast á að skutla okkur svo fjöldskylda hennar keyrði okkur á flugvöllinn og fjöldskyldan mín sótti okkur. Föstudagurinn 8.mars og ég var ekki enn búin að klára pakka þar sem mig þykir það alveg einstaklega leiðinlegt og er vön að hafa mömmu til að hjálpa mér þar sem ég á til að pakka miklu meira en ég þarf, allavega þá þurfti að fara til vinkonu minnar á föstudagskvöldinu því við þurftum að vera komin út úr húsi klukkan 6 laugardagsmorgun. Ég var orðin frekar stessuð því að ég og vinkona mín vorum ekki að flúga saman og frá seinustu upplifun minni að flúga ein þegar ég kom hingað því að þau skiptu gateinu og ég missti af fluginu en sem betur fer í þetta skipti gekk þetta eins og í sögu. Eftir 6 klukkutíma flug er ég loksins komin til Hawaii! Þegar ég kem þar sem maður sækir töskurnar og áttum að hitta farastjórann, ég sá þau ekki og þarna var ég líka alveg ''auðvitað þetta gekk aðeins of vel'' en þau voru samt þarna haha. Þegar við komum á hótelið fengum við nafnspjöld,bol og límmiða til að setja á raftækin okkar. Þessi dagur var meira en minna frír svo við gerðum bara svona það sem við vildum og ég fór með tvem finnskum krökkum út að boða. Seinna um kvöldið kemur restin af krökkunum ásamt dönsku vinkonu minni og tvem íslendingunum Svövu og Grétari sem voru í ferðinni og fyrstu íslendingarnir sem ég tala við face 2 face í 6 mánuði. Rosa skrítið fyrst en svo langaði mig bara ekki að hætta að tala. Ég nenni ekki alveg að skrifa hvað við gerðum frá degi til dags svo ég ætla að fara milliveginn. Við vorum á leiðinni að fara að surfa en það byrjaði að rigna og það kom líka vindur svo eftir svona hálftíma þá hættum við við og fórum til baka en þetta var ekkert smá erfitt með vindinum, en við fórum í ótrúlega flott moll í staðinn og borðuðum á Bubba Gump. Við sáum þar sem kongurinn átti heima þegar þau voru með kóng og sáum ótrúlega fallegar strendur með alveg tær bláum sjó. Fórum líka í hippa bæ sem var ekkert smá flottur þaðan í Polonysian Culture Center þar sem við sáum sýningar, lærðum svona hawaiiskan dans sem endaði með kvöldmati og ótrúlega flottri sýningu. Daginn eftir eyddum við öllum deginum á rosa flottri strönd sem ekki margir fara á aðalega ''local'' fólkið og vorum við einu sem vorum á ströndunni allan daginn þegar við komum heim á hótelið fóru allir í sturtu og skola sandinn og sjóinn af sér og flestir gerðu sig sæta og fína því að við fórum á Hard Rock að borða um kvöldið svo bara frí tíma til að labba um og versla eftir á. Þennan morgun skein sólin og við fórum aftur að sörfa og á bát sem fór með okkur lengra í sjóinn og fengum við að synda með fiskunum og sáum sjóskjaldbökur. Fimmtudaginn fórum við á Pearl Harbor þar sem WW2 byrjaði og sáum skipin og minningavegg sem öll nöfn hermannana sem dóu sem var yfir einu skipinu sem sökk þennan dag 1942 langar mig að segja en ég er ekki alveg viss en það er ennþá að leka olía frá skipinu. Seinna þennan dag þá fórum við í fjallgöngu á gömlu eldfjalli Diamond Head og um kvöldið þá fórum við á efstu hæð á hótelinu þar sem við fengum kvöldmat. Ekkert smá flott útsýni yfir Waikiki. Seinasta heila daginn fórum við að snorkla sem er að synda með fiskum, ekkert smá flott og kom mér á óvart hvað við þurfum alls ekki að fara langt til að sjá fiska, og fyrir þá sem hafa séð Soul Surfer þá var ég bara rétt hjá þar sem hákarlinn beit hendina af stelpunni en við fengum ekkert að vita það fyrr en eftir á, um kvöldið fórum við svo á Luau sem er svona veisla og þau elda svín, skera það ekkert niður eða neitt áður en þau elda það, rosa flott. Það var rosa flottar sýningar þarna og glæsileg leið til að enda ferðina.  Biðst afsökunar á hvernig ég setti þetta saman ég nenni bara ekki að skrifa alveg nákvæmlega hvað gerðist alla dagana. 

        Viku eftir að ég kem heim þá förum við skiptinemarnir í ferð saman í Death Valley sem er vel þekkt eyðimörk hérna. Rosa skemmtileg ferð fannst við bara sjá svolítið mikið af því sama þar sem að það er ekkert sérstaklega mikið á sjá þarna haha, en hótelið okkar var bara alveg á ríkismörkunum við Nevada svo núna hef ég komið í 6 ríki. Seinsta daginn fórum við í nammi búð og ótrúlegt en satt þá voru þau með lakkrís og alveg svona góðan lakkrís! En þessi ferð var ekkert smá skemmtileg og svo gaman að vera með hinum skiptinemunum mínum. 
      Vikuna eftir fer ég til LA til að hitta frænku mína Unni sem býr í LA þannig ég fékk að eyða páskahelginni með henni. Þegar ég kem úr lestinni tekur hún á móti mér og við förum í búðina að versla smá mat til að gera samlokur og ég var alltaf að reyna að spurja hana hvað við værum svo að fara gera og svo tekur hún mig á svona lítinn flugvöll þar sem vinur hennar og annar maður bíða eftir okkur og hún tekur mig í svona litla 4 sæta flugvél og við fljúgum yfir allt LA og ég sé bókstaflega allt þetta var svo gaman, brosið fór hreinlega ekki af mér. Kvöldið förum við svo á LA live og hún býður mér á rosa flottan sushi stað og svo allt í einu.. inn kemur enginn annar en Terry Crews !! Eftir matinn förum við í bíó og hver er þar ? Perez Hilton ! Daginn eftir erum við bara latar til svona 2 og svo keyrum við um í ríka hverfinu og ég sá Bruno Mars og Kim Karadashian keyra ! Óhætt að segja að frænka mín sló alveg í geng þessa helgi ! 
      
     Apríl 
Ég tók þátt á áheyrandaprufum fyrir GT got talent í skólanum mínum því að besta vinkona mín bókstaflega neyddi mig til þess, en ég komst áfram og er keppnin sjálf í næstu viku. Svo seinasta fimmtudag þá var ég mer fyrirlestur í skólanum mínum um skiptinema og hvernig það er að vera skiptinemi og fékk 2 AFS stelpur til að vera með mér og svo einn af AFS sjálfboðaliðunum kom og talaði líka en hann var svo sáttur með mig og fyrirlesturinn sem ég gerði að hann ætlar að að hringja í AFS í NY sem er yfir öllu og honum lagar að fara með þetta í aðra skóla. 
Í gær þá fórum við á Medieval times sem er sýning sem þú ert smá kominn aftur í tímann með riddurum og svona, rosa gaman og ekkert smá flott og fjöldskyldunni minni finnst svolítið gaman að gera mig vandræðalega og þegar þau voru að kalla upp fólk til að heiðra þau svona þegar kóngurinn er með sverð og fer yfir axlirnar á þér já þær skráðu mig niður og ég fór fyrir framan allt þetta fólk, ég var eins og tómatur í framan en þetta var bara gaman. Ég er engin svaðaleg hesta mannsekja en hestarnir á þessari sýningu.. Vá þeir voru svo fallegir! 
En þetta er svona megið af þessu sem ég er búin að vera gera. Skólinn er búinn lok maí og planið að fara til Las Vegas í júní og vera í einhverja viku. En það styttist svakalega í að ég komi heim bara sirka 2 og hálfur mánuður eftir sem eru bara 10 vikur. 
Meira var það ekki

Saturday, February 23, 2013

: ))))))

Kominn tími á nýtt blogg! 
Á afmælinu mínu gerði ég eginlega ekki neitt talaði við mömmu,pabba og Söru á Skype og horfði á sjónvarpið en svo um kvöldið tóku þau mig á Cheesecake Factory og var eins og að allir ættu afmæli þennan dag! En svo helgina eftir þá buðu þær systur u.þ.b 20 manns í afmælis partý og megnið af fólkinu þekkti ég ekki og hafði aldrei hitt áður en það var samt rosa gaman. Elduðu rosa góðan mat og keyptu handa mér Barbie köku það sem það s.s búið að stimpla mig sem Barbie. 


                                                         Jólin voru eitthvað annað!
24.des  gerðum við ekkert ! Ég var ógeðsleg og í náttfötunum allan daginn en við spiluðum reyndar aðeins um kvöldið. En 25 vöknuðum við snemma og  opnuðum pakka. Ekkert smá sátt við það sem ég fékk m.a. myndavél, Sif Jakobs, úr og svo gáfu þær mér svona kit til að gera Smorse's. Seinna um daginn fórum við í matarboð til ömmu og afa og þaðan í bílabíó. En jól í Bandaríkjunum er samt rosa flott því það er svo mikið skreytt hérna og all out! Ég fór sem sagt með skiptinemunum í annan bæ sem er c.a 30 mínútum frá mínum bæ í ákveðið nágreni þar sem þau skreyta bilað mikið og ekkert smá flott! 

Áramót
Reagan vinkona mín kom til mín og við borðuðum allskonar óhollustu og horfðum á myndir og höfðum það bara voða kósý en þetta var mjög leiðinlegt og ekkert eins og heima þetta hefði þess vegna getað verið bara venjulegt þriðjudagskvöld. En við biðum þangað til að klukkan yrði 12 svo við gætum farið að sofa (Held að ég hafi aldrei beðið eftir að klukkan yrði 12 á áramótum svo ég gæti farið að sofa nema á ungum aldri) En við þurftum reyndar að vakna snemma eða kl 5 um morguninn því að á hverjum nýárs degi er The Rose Parade í öðrum bæ ekki svo langt frá en við þurftum að vera komin í Upland fyrir kl 7 til að hitta hina skiptinemana og fara þaðan á skrúðgönguna en það var reyndar ekkert smá flott en rosa langt! 


Super bowl!!
Ótrúlega gaman! við fórum reyndar ekki í neitt teiti eins og sumir gera en það var alveg fínt við fórum í búðina og keyptum allskonar rétti,nammi,snakk o.fl en leikurinn var eitthvað annað hef sjaldan æst mig svona mikið yfir leik! Það var stutt í tár.. En liðið mitt vann á endanum en ég hélt sem sagt með Baltimore Ravens en næstum allir hérna héltu með 49'ers því að þeir eru í San Francisco sem er hér í Cali. En ég er líka búin að fara til San Diego og við fórum og skoðuðum The Midway sem er gamalt Navy skip og ekkert smá stórt þannig það fór alveg heill dagur í að skoða það en rosa áhugavert samt að skoða. Það voru líka rosa margir ferða menn þarna og ekki bara Kínverskir ferða menn sem er ekki sjaldséð sjón haha! En við hittum par frá Póllandi og Bretlandi og Svíþjóð. 



Sjúkraþjálfun
Í jólafríinu gerðist eitthvað við bakið mitt og ég hef ekki hugmynd hvernig ég fór að því sem gerðist við bakið mitt. Ég semsagt snéri mjöðmunum mínum úr stað og eru þær ekki á réttum stað, með þessu fylgdi að neðstu hryggjaliðarnir snérust eitthvað úr stað líka og með þessu öllu þá fór ég að því að vöðvarnir í kring um bakið og mjaðmirnar og í löppunum stífnuðu og fóru saman eða eitthvað svoleiðis (Biðst afsökunar á ótrúlega erfitt með að útskýra þetta). En sjúkraþjálfun er að hjálpa mér rosa mikið sem er æði. Já og eftir hverja ''æfingu'' tengja þau mig við þetta tæki sem nuddar á mér bakið á meðan ég er í kælingu.. Himnasending þetta er svo gott! 

Valentínusardagur
Ef það er eitthvað over the top hérna í USA þá er það Valentines day! Verslanir byrjuðu að selja Valentines hitt og þetta í desember. Valentines day var eins og það væru allir par en það er reynar frekar algengt að krakkar hérna byrji saman til að vera saman á Valentines og hætta svo saman stuttu seinna. En það var önnur hver stelpa með bangsa á stærð við þær sjálfar og 10 blöðrur,nammi og blóm. Og það sem fólk gerir til að til að spurja hvort annað um að vera Valentine... En þetta var svo sem fínn dagur haha. Hér á myndinni fyrir neðan spurði strákur eina stelpu um að vera valentines-ið sitt á körfuboltaleik í skólanum.

Annað
Ég fór til Hollywood seinasta mánudag í Universal Studios, rosa gaman en fannst garðurinn ekki eins flottur og í Florida en eina sem þessi garður hafði yfir Florida var að þau eru með svona túra sem þú færð að skoða film set og sjá sumir fræga að filma en ég ver ekki svo heppin en sá svo mikið og flott. HAWAII eftir 14 daga !!!!! Er að missa mig er svo spennt. og vikuna sem ég kem heim fer ég til Death Valley með skiptinemunum í 3 daga að skoða en vikuna eftir það er planið að fara til Las Vegas þessar tvær vikur er ég í Spring Break. Þannig ég fer bara eina viku í skólann í mars! Svo 11. apríl þá ætla ég og vinonur mínar frá Sviss og Danmörku að halda fyrirlestur í skólanum mínum um skiptinema nám í öðru landi með AFS, sem vonandi á eftir að ganga vel. Held að þetta sé gott í bili en ég vil biðjast afsökurnar ef það eru stafsetningarvillur, ekkert smá skrítið hvað ég er búin að gleyma Íslenskunni en það er kannski ekki skrítið þar sem ég er voða lítið búin að skrifa eða tala Íslensku seinustu 5 mánuðina.
Meira var það ekki.


Tuesday, November 6, 2012

Sorry veit að ég er ekki búin að blogga í smá tíma en þetta er bara svo leiðinlegt haha! 
Allvega, Up & Coming, svo ótrúlega gaman !! Dagurinn byrjaði þannig að ég þurfti að vakna aðeins yfir 5 til að gera mig til, krulla hárið og mála mig og fara í þennan blessaða kjól, nota bene ég var í þessum síðkjól meira en minna allan daginn. Ég fer svo í skólan þarf ekki að fara í neina tíma þennan dag mig til mikillar gleði! Mæti í ASB stofuna og svo förum við í íþróttahúsið þar sem pepprally-ið var haldið fyrir fótbolta strákana en samt meira útaf Up & Coming, þar förum við á svona æfingu og gera allt endalega klárt svo koma allir krakkarnir og við þurftum að bíða frammi : ( En svo var sýnt kynningar myndbandið okkar  og kallað okkur inn ein í einu, svo dönsuðum við vals en ég dansaði við eina stelpuna því að strákurinn sem átti að dansa við hana mætti ekki og var ég beðin að stíga inn í. Þetta var alveg ótrúlega gaman en eftir það fórum við í myndatöku. Það var gefið okkur að borða og dekrað ekkert smá við okkur, svo algjörlega allt öðruvísi en heima. Svo fæ ég að fara heim í smá tíma, þannig við förum að sækja litlu host fændsystkinin mín í skólan þeirra, og fór svo heim og gera mig aftur til því að það var skrúðganga um 4 og svo Homecoming court um 7 þar sem að í hálfleik  komum við inn á svo flottum bílum og svo kynnt okkur þegar kynnirinn kynnti mig bætti hann smá við, við fengum semsagt spurningar og áttum að svara og þessar spurningar myndu verða lestnar upp þarna og spurningin var hvað líkar þig við Grand Terrace High School og ég svaraði; Allt svo hreint og fínt,mikið að vinalegu fólki og allt svo öðruvísi frá öllu heima og þar bætti kynnirinn við sérstaklega allir mexikanarnir og svona 70% af fólkinu sem var þarna voru að mexikóskri ætt, ég hélt ég myndi ekki verða eldri.. En sem betur fer leiðrétti hann sig.
               Daginn eftir var svo ballið og tók daginn bara í það að vera löt var svo þreytt eftir þessa viku en mætti þarna um 7 og hitti vinkonur mínar og svo dansa bara og hafa gaman, reyndar vandræðalegt hvað allir voru með date en ég var svo ný þarna að þekktu mig svo fáir og DJ-inn var hræðilegur ! Það var svo krýnt strákana á ballinu 
               Vikuna eftir fór ég með ASB tímanum mínum í annan skóla og stjórnanda fund þar sem við fengum allskonar áhugaverðar upplýsingar og fyrirlestra með hugmyndum um peprally og fleira, og fengum fyrirlestur frá blindum manni sem hafði lifað af 9/11 og var á 74 hæð og labbaði niður stigann með hundinn sinn og samstarfsmanni sínum og sagði þessa settningu sem vonandi ég gleymi ekki ,,Don't let your sight get in way of your vision'' 

             Svo er ég búin að fara í bílabíó sem var svo gaman við keyptum nammi, snakk og svo kvöldmat og komum okkur svo vel fyrir í kósý fötum og svona, þú færð semsagt miða sem er með útvarpsstöð og heyrir í myndinni í gegnum útrvarpsstöðina. Við borguðum 7 dollara á mann og gátum horft á 3 myndir en við sáum Hotel Transelvania og Pitch Perfect, svo fyndin mynd! 
               Fyrir 2 vikum held ég fórum við svo í Legoland og og eyddum deginum þar, var rosa gaman en það var frekar kalt og svo ringdi og við fengum ekkert nammi þar en host fjöldskyldan mín borgaði meira fyrir miðana okkar fyrir trick or treat partyið sem var eftir lokun fyrir fólk sem borgaði meira og þau áttu að fá nammi, bömmer! En ég fékk víkinga myndina mína svo þetta var ekki svo leiðinlegt. Mánudaginn eftir fórum við á Pompkin Patch smá svona fjöldskyldu hátið þar sem þú kaupir grasker ferð í ratleik og svo eru tæki og dýr fyrir krakkana. 
         Ég gaf blóð svo í fyrsta skipti í seinustu viku sem var smá hræðilegt en ég lifði, dagurinn var bara um það eginlega því að ég er ASB þá þurfti ég ekki að fara í neina tíma var bara að hjálpa til og svona. Daginn eftir var svo Halloween, mikið mál þarna! Ég var Barbie og mjög gaman, fór fyrr úr skólanum því að ég fór í Disney land !! Svo ótrúlega gaman! Það voru alls ekki og margir þarna þurftum í mesta lagi að bíða í 30 mín eftir tæki sem er víst voða sjaldséð og svo lokaðist garðuinn fyrir almenning kl 6 en þeir sem borguðu fyir trick or treat party-ið var garðurinn opinn til 11 held ég. Ég fékk svo mikið af nammi! Þetta var ótrúlega gaman. 
          Svo núna seinasta laugardag vaknaði ég kl 7 til að hitta AFS krakkana til að taka lestina til LA og eyddum við deginum þar, var ekki komin heim fyrr en um 12 um nóttina en við fórum í mexikóska hverfið og þaðan í kínverska hverfið alveg ótrúlegt hvað þú finnur þar! Fengum okkur svo að borða á frekar subbulegu matartorgi en þaðan var haldið til Hollywood en við gerðum svosem það sama þar og við gerðum annan daginn sem ég var hérna, en við fengum bara að skoða sjálf um frá 4-7. 
Hef nú ekki mikið annað að segja ekkert merkilegt að gerast nema að afmælið mitt er næsta sunnudag og ætla þær systur að fara með mig á Cheesecake Factory! Frí næsta mánudag og thanksgiving brake eftir 2 vikur. 

Meira var það ekki.

Friday, September 28, 2012

Alveg frekar mikið búið að gerast síðan síðast. 
Ég er búin að prófa og sjá allskonar og smakka hitt og þetta. Mig finnst maturinn hérna alveg svaðalega vondur eða allavega ekki búin að venjast og veit ég ekki hvað ég myndi gera fyrir vanillu skyr,Greifa pizzu,malt,GOTT ferskt brauð,mjólk og fleira.Skólinn er svo fínn, allt svo gott núna, var í svaka erfiðum tímum sem fylgdi mikið heima nám en sem betur fer er ég búin að ná að breyta því.Í seinustu viku fórum við í svona trampolín garð þar sem er bara allt í trampolíni, það var svaka gaman. 
   En svona það sem er mest í gangi hjá mér er að það er Up & Coming í næstu viku og vegna þess að þetta er ekki Homecoming er vegna að þetta er glæ nýr skóli og það er engir Seniors sem eru að koma 'heim'. En skólinn ákvað að heiðra mér þann titil að vera Honorary Princess (Heiðurs prinsessa). Og mikið sem fylgir þessum titli t.d að kaupa svartan síðkjól sem er ekkert djók því við fórum á miðvikudaginn og allir kjólarnir sem mig mögulega langaði í þá voru einhverjar fitubollur búnar að reyna troða sér í kjólinn og skemma rennilásinn! Og kaupa annan kjól fyrir Homecoming ballið því að síðkjóllinn er fyrir fótboltaleikinn sem er á föstudaginn þar sem einhver hátíð verður eða eitthvað slíkt í hálfleik og við komum í síðkjólum og kynnum okkur eða myndbandið sem var tekið af okkur að kynna okkur, er ekki alveg viss. Svo er ballið sjálft á laugardagskvöldinu þar sem ég fæ kóronu og fínerí en málið er það að ég þarf að  sýna einhvern talent(hæfileika) í eina og hálfa mínútu! Hef ekki hugmynd um hvað ég á að gera! Svo er ég í ASB tíma sem er svona Student Body eða einhvers konar stjórn og við verðum bara í því að undirbúa í næstu viku og svo ofan á það að þá er ég 'Royal' (eins og þau vilja kalla það)  er það eitthvað ofaná sem ég þarf að gera, myndatökur og slíkt. Þetta er svo mikið mál fyrir þau og eru þau alltaf að koma mér á óvart með eitthvað nýtt en það er bara gaman. 

Þetta er það sem mun vera að gerst hjá mér þessa vikuna
Meira var það ekki.

Monday, September 10, 2012

Byrjunin

Dagurinn 7.september.
Eyddi deginum með fjöldskyldunni minni í Reykjavík til svona 2 þá fórum við til Keflavíkur. Keflavík var svo örlagastundin, svo erfitt að segja bæ við mömmu,pabba og Söru. Klukkan 5 átti ég flug til Seattle sem var tæpir 8 klukkutímar og það var smá seinkun og ég átti bara 3 tíma í Seattle en fór svo niður í 2, farangurinn minn var náttúrlega seinastur að koma á rúlluteppið svo það niður í 1 klukkutíma þá átti eftir að fara í gegnum immigration og finna gate-ið mitt, þarna fyrst varð ég stessuð. Fann svo rosa fína íslenska stelpu sem var að fara á svipaðan stað og ég sem hjálpaði mér. Þegar ég loksins fann gate-ið mitt sast ég niður,var svo ótrúlega þreytt svaf ekkert í flugvélinni. Allt í einu heyri ég nafnið mitt kallað í svona kallkerfi ,,Elva Krittsas this is the last call'' Ég vissi ekkert ég var við gate-ið mitt, fer að konuni sem var við gate-ið mitt og spyr hana og hún bara já við erum alltaf að breyta. Svo ég missti af fluginu mínu og þurfti að hringja í neyðarsíma AFS en þá fattaði ég að ég gleymdi að slökkva á 3G í símanum mínum sem tók alla inneignina mína... Þá þurfti ég að fara í svona pay phone og bóka nýtt flug en fékk svo nýtt klukkutíma seinna.
     Loksins kom ég uppí flugvélina sem tók mig til LA um leið og ég sast sofnaði ég svo flugið var eins og 5 mínútur en var 2 og hálfur tími. Þegar ég kem til LA er AFS sjálfboðaliði sem bíður eftir mér og hún tók mig svo á hótelið. Þegar ég kem á hótelið virkar lykillinn minn ekki (svona eins og það hafi ekki nóg farið vitlaust). Fékk rúmlega 4 klst til að sofa því við þurftum að vakna kl 6:30 til að fara í morgunmat kl 7:30, Eftir það var orientation sem er að þau segja okkur hvað á að gera og hvað á ekki að gera. Klukkan 1-2 lögðum við svo á stað til Hollywood sem tók svona klukkutíma, alveg met mikið að biluðu fólki sem tekur lestina og sem klæðir sig í búninga á hollywood bl !! Í Hollywood var ég orðin svo þreytt og það var alveg rosa heitt, en samt allt svo mikill draumur!
     Sunnudagurinn var svolítið frír ég og herbergis félaginn minn þurftum að vakna bara kl 7 og fara í morgunmat 8 þá fengum við frí alveg til 11 því þá fórum við í svona grill í einu heimahúsi hjá einhverjum sjálfboðaliða. Þar hittum við fjöldskyldurnar í fyrsta skiptið. Eftir það fer ég loksins 'heim'. Um kvöldið kemur svo amma og afi, frændinn og 5 börnin sem eru frá 8-19 held ég. 

     Í dag fór ég ekki í skólan því ég þurfti að fara í próf þar sem fólk fer til að skrá sig í skóla og þar sjá þau hvar þau eiga að vera(eins og 7 eða 9 bekkur,sérkennsla eða ekki), svo ég þurfti bara að taka ensku og fékk advanced og kallinn sagði að ég talaði betri ensku en margir sem búa þarna svo það er gott en kom mér samt virkilega á óvart haha. Fór svo í Target og bara eitthvað að stússast. Á morgun fer ég svo í skólan að velja tímana mína og vonandi á miðvikudaginn get ég byrjað í skólanum. 


Meira var það ekki