Tuesday, November 6, 2012

Sorry veit að ég er ekki búin að blogga í smá tíma en þetta er bara svo leiðinlegt haha! 
Allvega, Up & Coming, svo ótrúlega gaman !! Dagurinn byrjaði þannig að ég þurfti að vakna aðeins yfir 5 til að gera mig til, krulla hárið og mála mig og fara í þennan blessaða kjól, nota bene ég var í þessum síðkjól meira en minna allan daginn. Ég fer svo í skólan þarf ekki að fara í neina tíma þennan dag mig til mikillar gleði! Mæti í ASB stofuna og svo förum við í íþróttahúsið þar sem pepprally-ið var haldið fyrir fótbolta strákana en samt meira útaf Up & Coming, þar förum við á svona æfingu og gera allt endalega klárt svo koma allir krakkarnir og við þurftum að bíða frammi : ( En svo var sýnt kynningar myndbandið okkar  og kallað okkur inn ein í einu, svo dönsuðum við vals en ég dansaði við eina stelpuna því að strákurinn sem átti að dansa við hana mætti ekki og var ég beðin að stíga inn í. Þetta var alveg ótrúlega gaman en eftir það fórum við í myndatöku. Það var gefið okkur að borða og dekrað ekkert smá við okkur, svo algjörlega allt öðruvísi en heima. Svo fæ ég að fara heim í smá tíma, þannig við förum að sækja litlu host fændsystkinin mín í skólan þeirra, og fór svo heim og gera mig aftur til því að það var skrúðganga um 4 og svo Homecoming court um 7 þar sem að í hálfleik  komum við inn á svo flottum bílum og svo kynnt okkur þegar kynnirinn kynnti mig bætti hann smá við, við fengum semsagt spurningar og áttum að svara og þessar spurningar myndu verða lestnar upp þarna og spurningin var hvað líkar þig við Grand Terrace High School og ég svaraði; Allt svo hreint og fínt,mikið að vinalegu fólki og allt svo öðruvísi frá öllu heima og þar bætti kynnirinn við sérstaklega allir mexikanarnir og svona 70% af fólkinu sem var þarna voru að mexikóskri ætt, ég hélt ég myndi ekki verða eldri.. En sem betur fer leiðrétti hann sig.
               Daginn eftir var svo ballið og tók daginn bara í það að vera löt var svo þreytt eftir þessa viku en mætti þarna um 7 og hitti vinkonur mínar og svo dansa bara og hafa gaman, reyndar vandræðalegt hvað allir voru með date en ég var svo ný þarna að þekktu mig svo fáir og DJ-inn var hræðilegur ! Það var svo krýnt strákana á ballinu 
               Vikuna eftir fór ég með ASB tímanum mínum í annan skóla og stjórnanda fund þar sem við fengum allskonar áhugaverðar upplýsingar og fyrirlestra með hugmyndum um peprally og fleira, og fengum fyrirlestur frá blindum manni sem hafði lifað af 9/11 og var á 74 hæð og labbaði niður stigann með hundinn sinn og samstarfsmanni sínum og sagði þessa settningu sem vonandi ég gleymi ekki ,,Don't let your sight get in way of your vision'' 

             Svo er ég búin að fara í bílabíó sem var svo gaman við keyptum nammi, snakk og svo kvöldmat og komum okkur svo vel fyrir í kósý fötum og svona, þú færð semsagt miða sem er með útvarpsstöð og heyrir í myndinni í gegnum útrvarpsstöðina. Við borguðum 7 dollara á mann og gátum horft á 3 myndir en við sáum Hotel Transelvania og Pitch Perfect, svo fyndin mynd! 
               Fyrir 2 vikum held ég fórum við svo í Legoland og og eyddum deginum þar, var rosa gaman en það var frekar kalt og svo ringdi og við fengum ekkert nammi þar en host fjöldskyldan mín borgaði meira fyrir miðana okkar fyrir trick or treat partyið sem var eftir lokun fyrir fólk sem borgaði meira og þau áttu að fá nammi, bömmer! En ég fékk víkinga myndina mína svo þetta var ekki svo leiðinlegt. Mánudaginn eftir fórum við á Pompkin Patch smá svona fjöldskyldu hátið þar sem þú kaupir grasker ferð í ratleik og svo eru tæki og dýr fyrir krakkana. 
         Ég gaf blóð svo í fyrsta skipti í seinustu viku sem var smá hræðilegt en ég lifði, dagurinn var bara um það eginlega því að ég er ASB þá þurfti ég ekki að fara í neina tíma var bara að hjálpa til og svona. Daginn eftir var svo Halloween, mikið mál þarna! Ég var Barbie og mjög gaman, fór fyrr úr skólanum því að ég fór í Disney land !! Svo ótrúlega gaman! Það voru alls ekki og margir þarna þurftum í mesta lagi að bíða í 30 mín eftir tæki sem er víst voða sjaldséð og svo lokaðist garðuinn fyrir almenning kl 6 en þeir sem borguðu fyir trick or treat party-ið var garðurinn opinn til 11 held ég. Ég fékk svo mikið af nammi! Þetta var ótrúlega gaman. 
          Svo núna seinasta laugardag vaknaði ég kl 7 til að hitta AFS krakkana til að taka lestina til LA og eyddum við deginum þar, var ekki komin heim fyrr en um 12 um nóttina en við fórum í mexikóska hverfið og þaðan í kínverska hverfið alveg ótrúlegt hvað þú finnur þar! Fengum okkur svo að borða á frekar subbulegu matartorgi en þaðan var haldið til Hollywood en við gerðum svosem það sama þar og við gerðum annan daginn sem ég var hérna, en við fengum bara að skoða sjálf um frá 4-7. 
Hef nú ekki mikið annað að segja ekkert merkilegt að gerast nema að afmælið mitt er næsta sunnudag og ætla þær systur að fara með mig á Cheesecake Factory! Frí næsta mánudag og thanksgiving brake eftir 2 vikur. 

Meira var það ekki.

Friday, September 28, 2012

Alveg frekar mikið búið að gerast síðan síðast. 
Ég er búin að prófa og sjá allskonar og smakka hitt og þetta. Mig finnst maturinn hérna alveg svaðalega vondur eða allavega ekki búin að venjast og veit ég ekki hvað ég myndi gera fyrir vanillu skyr,Greifa pizzu,malt,GOTT ferskt brauð,mjólk og fleira.Skólinn er svo fínn, allt svo gott núna, var í svaka erfiðum tímum sem fylgdi mikið heima nám en sem betur fer er ég búin að ná að breyta því.Í seinustu viku fórum við í svona trampolín garð þar sem er bara allt í trampolíni, það var svaka gaman. 
   En svona það sem er mest í gangi hjá mér er að það er Up & Coming í næstu viku og vegna þess að þetta er ekki Homecoming er vegna að þetta er glæ nýr skóli og það er engir Seniors sem eru að koma 'heim'. En skólinn ákvað að heiðra mér þann titil að vera Honorary Princess (Heiðurs prinsessa). Og mikið sem fylgir þessum titli t.d að kaupa svartan síðkjól sem er ekkert djók því við fórum á miðvikudaginn og allir kjólarnir sem mig mögulega langaði í þá voru einhverjar fitubollur búnar að reyna troða sér í kjólinn og skemma rennilásinn! Og kaupa annan kjól fyrir Homecoming ballið því að síðkjóllinn er fyrir fótboltaleikinn sem er á föstudaginn þar sem einhver hátíð verður eða eitthvað slíkt í hálfleik og við komum í síðkjólum og kynnum okkur eða myndbandið sem var tekið af okkur að kynna okkur, er ekki alveg viss. Svo er ballið sjálft á laugardagskvöldinu þar sem ég fæ kóronu og fínerí en málið er það að ég þarf að  sýna einhvern talent(hæfileika) í eina og hálfa mínútu! Hef ekki hugmynd um hvað ég á að gera! Svo er ég í ASB tíma sem er svona Student Body eða einhvers konar stjórn og við verðum bara í því að undirbúa í næstu viku og svo ofan á það að þá er ég 'Royal' (eins og þau vilja kalla það)  er það eitthvað ofaná sem ég þarf að gera, myndatökur og slíkt. Þetta er svo mikið mál fyrir þau og eru þau alltaf að koma mér á óvart með eitthvað nýtt en það er bara gaman. 

Þetta er það sem mun vera að gerst hjá mér þessa vikuna
Meira var það ekki.

Monday, September 10, 2012

Byrjunin

Dagurinn 7.september.
Eyddi deginum með fjöldskyldunni minni í Reykjavík til svona 2 þá fórum við til Keflavíkur. Keflavík var svo örlagastundin, svo erfitt að segja bæ við mömmu,pabba og Söru. Klukkan 5 átti ég flug til Seattle sem var tæpir 8 klukkutímar og það var smá seinkun og ég átti bara 3 tíma í Seattle en fór svo niður í 2, farangurinn minn var náttúrlega seinastur að koma á rúlluteppið svo það niður í 1 klukkutíma þá átti eftir að fara í gegnum immigration og finna gate-ið mitt, þarna fyrst varð ég stessuð. Fann svo rosa fína íslenska stelpu sem var að fara á svipaðan stað og ég sem hjálpaði mér. Þegar ég loksins fann gate-ið mitt sast ég niður,var svo ótrúlega þreytt svaf ekkert í flugvélinni. Allt í einu heyri ég nafnið mitt kallað í svona kallkerfi ,,Elva Krittsas this is the last call'' Ég vissi ekkert ég var við gate-ið mitt, fer að konuni sem var við gate-ið mitt og spyr hana og hún bara já við erum alltaf að breyta. Svo ég missti af fluginu mínu og þurfti að hringja í neyðarsíma AFS en þá fattaði ég að ég gleymdi að slökkva á 3G í símanum mínum sem tók alla inneignina mína... Þá þurfti ég að fara í svona pay phone og bóka nýtt flug en fékk svo nýtt klukkutíma seinna.
     Loksins kom ég uppí flugvélina sem tók mig til LA um leið og ég sast sofnaði ég svo flugið var eins og 5 mínútur en var 2 og hálfur tími. Þegar ég kem til LA er AFS sjálfboðaliði sem bíður eftir mér og hún tók mig svo á hótelið. Þegar ég kem á hótelið virkar lykillinn minn ekki (svona eins og það hafi ekki nóg farið vitlaust). Fékk rúmlega 4 klst til að sofa því við þurftum að vakna kl 6:30 til að fara í morgunmat kl 7:30, Eftir það var orientation sem er að þau segja okkur hvað á að gera og hvað á ekki að gera. Klukkan 1-2 lögðum við svo á stað til Hollywood sem tók svona klukkutíma, alveg met mikið að biluðu fólki sem tekur lestina og sem klæðir sig í búninga á hollywood bl !! Í Hollywood var ég orðin svo þreytt og það var alveg rosa heitt, en samt allt svo mikill draumur!
     Sunnudagurinn var svolítið frír ég og herbergis félaginn minn þurftum að vakna bara kl 7 og fara í morgunmat 8 þá fengum við frí alveg til 11 því þá fórum við í svona grill í einu heimahúsi hjá einhverjum sjálfboðaliða. Þar hittum við fjöldskyldurnar í fyrsta skiptið. Eftir það fer ég loksins 'heim'. Um kvöldið kemur svo amma og afi, frændinn og 5 börnin sem eru frá 8-19 held ég. 

     Í dag fór ég ekki í skólan því ég þurfti að fara í próf þar sem fólk fer til að skrá sig í skóla og þar sjá þau hvar þau eiga að vera(eins og 7 eða 9 bekkur,sérkennsla eða ekki), svo ég þurfti bara að taka ensku og fékk advanced og kallinn sagði að ég talaði betri ensku en margir sem búa þarna svo það er gott en kom mér samt virkilega á óvart haha. Fór svo í Target og bara eitthvað að stússast. Á morgun fer ég svo í skólan að velja tímana mína og vonandi á miðvikudaginn get ég byrjað í skólanum. 


Meira var það ekki