Ég er búin að prófa og sjá allskonar og smakka hitt og þetta. Mig finnst maturinn hérna alveg svaðalega vondur eða allavega ekki búin að venjast og veit ég ekki hvað ég myndi gera fyrir vanillu skyr,Greifa pizzu,malt,GOTT ferskt brauð,mjólk og fleira.Skólinn er svo fínn, allt svo gott núna, var í svaka erfiðum tímum sem fylgdi mikið heima nám en sem betur fer er ég búin að ná að breyta því.Í seinustu viku fórum við í svona trampolín garð þar sem er bara allt í trampolíni, það var svaka gaman.
En svona það sem er mest í gangi hjá mér er að það er Up & Coming í næstu viku og vegna þess að þetta er ekki Homecoming er vegna að þetta er glæ nýr skóli og það er engir Seniors sem eru að koma 'heim'. En skólinn ákvað að heiðra mér þann titil að vera Honorary Princess (Heiðurs prinsessa). Og mikið sem fylgir þessum titli t.d að kaupa svartan síðkjól sem er ekkert djók því við fórum á miðvikudaginn og allir kjólarnir sem mig mögulega langaði í þá voru einhverjar fitubollur búnar að reyna troða sér í kjólinn og skemma rennilásinn! Og kaupa annan kjól fyrir Homecoming ballið því að síðkjóllinn er fyrir fótboltaleikinn sem er á föstudaginn þar sem einhver hátíð verður eða eitthvað slíkt í hálfleik og við komum í síðkjólum og kynnum okkur eða myndbandið sem var tekið af okkur að kynna okkur, er ekki alveg viss. Svo er ballið sjálft á laugardagskvöldinu þar sem ég fæ kóronu og fínerí en málið er það að ég þarf að sýna einhvern talent(hæfileika) í eina og hálfa mínútu! Hef ekki hugmynd um hvað ég á að gera! Svo er ég í ASB tíma sem er svona Student Body eða einhvers konar stjórn og við verðum bara í því að undirbúa í næstu viku og svo ofan á það að þá er ég 'Royal' (eins og þau vilja kalla það) er það eitthvað ofaná sem ég þarf að gera, myndatökur og slíkt. Þetta er svo mikið mál fyrir þau og eru þau alltaf að koma mér á óvart með eitthvað nýtt en það er bara gaman.
Þetta er það sem mun vera að gerst hjá mér þessa vikuna
Meira var það ekki.
No comments:
Post a Comment