Mars var alveg troð fullur af atburðum sem ég hefði aldrei haldið að ég myndi gera! Óhætt að segja að Mars var uppáhaldsmánuðinn hingað til.
Ég fór aðeins eina viku í skólan því 9.mars fór ég til Hawaii með vinkonu minni frá Danmörku sem býr í Clearmont. Fjöldskyldur okkar ákvöðu að skiptast á að skutla okkur svo fjöldskylda hennar keyrði okkur á flugvöllinn og fjöldskyldan mín sótti okkur. Föstudagurinn 8.mars og ég var ekki enn búin að klára pakka þar sem mig þykir það alveg einstaklega leiðinlegt og er vön að hafa mömmu til að hjálpa mér þar sem ég á til að pakka miklu meira en ég þarf, allavega þá þurfti að fara til vinkonu minnar á föstudagskvöldinu því við þurftum að vera komin út úr húsi klukkan 6 laugardagsmorgun. Ég var orðin frekar stessuð því að ég og vinkona mín vorum ekki að flúga saman og frá seinustu upplifun minni að flúga ein þegar ég kom hingað því að þau skiptu gateinu og ég missti af fluginu en sem betur fer í þetta skipti gekk þetta eins og í sögu. Eftir 6 klukkutíma flug er ég loksins komin til Hawaii! Þegar ég kem þar sem maður sækir töskurnar og áttum að hitta farastjórann, ég sá þau ekki og þarna var ég líka alveg ''auðvitað þetta gekk aðeins of vel'' en þau voru samt þarna haha. Þegar við komum á hótelið fengum við nafnspjöld,bol og límmiða til að setja á raftækin okkar. Þessi dagur var meira en minna frír svo við gerðum bara svona það sem við vildum og ég fór með tvem finnskum krökkum út að boða. Seinna um kvöldið kemur restin af krökkunum ásamt dönsku vinkonu minni og tvem íslendingunum Svövu og Grétari sem voru í ferðinni og fyrstu íslendingarnir sem ég tala við face 2 face í 6 mánuði. Rosa skrítið fyrst en svo langaði mig bara ekki að hætta að tala. Ég nenni ekki alveg að skrifa hvað við gerðum frá degi til dags svo ég ætla að fara milliveginn. Við vorum á leiðinni að fara að surfa en það byrjaði að rigna og það kom líka vindur svo eftir svona hálftíma þá hættum við við og fórum til baka en þetta var ekkert smá erfitt með vindinum, en við fórum í ótrúlega flott moll í staðinn og borðuðum á Bubba Gump. Við sáum þar sem kongurinn átti heima þegar þau voru með kóng og sáum ótrúlega fallegar strendur með alveg tær bláum sjó. Fórum líka í hippa bæ sem var ekkert smá flottur þaðan í Polonysian Culture Center þar sem við sáum sýningar, lærðum svona hawaiiskan dans sem endaði með kvöldmati og ótrúlega flottri sýningu. Daginn eftir eyddum við öllum deginum á rosa flottri strönd sem ekki margir fara á aðalega ''local'' fólkið og vorum við einu sem vorum á ströndunni allan daginn þegar við komum heim á hótelið fóru allir í sturtu og skola sandinn og sjóinn af sér og flestir gerðu sig sæta og fína því að við fórum á Hard Rock að borða um kvöldið svo bara frí tíma til að labba um og versla eftir á. Þennan morgun skein sólin og við fórum aftur að sörfa og á bát sem fór með okkur lengra í sjóinn og fengum við að synda með fiskunum og sáum sjóskjaldbökur. Fimmtudaginn fórum við á Pearl Harbor þar sem WW2 byrjaði og sáum skipin og minningavegg sem öll nöfn hermannana sem dóu sem var yfir einu skipinu sem sökk þennan dag 1942 langar mig að segja en ég er ekki alveg viss en það er ennþá að leka olía frá skipinu. Seinna þennan dag þá fórum við í fjallgöngu á gömlu eldfjalli Diamond Head og um kvöldið þá fórum við á efstu hæð á hótelinu þar sem við fengum kvöldmat. Ekkert smá flott útsýni yfir Waikiki. Seinasta heila daginn fórum við að snorkla sem er að synda með fiskum, ekkert smá flott og kom mér á óvart hvað við þurfum alls ekki að fara langt til að sjá fiska, og fyrir þá sem hafa séð Soul Surfer þá var ég bara rétt hjá þar sem hákarlinn beit hendina af stelpunni en við fengum ekkert að vita það fyrr en eftir á, um kvöldið fórum við svo á Luau sem er svona veisla og þau elda svín, skera það ekkert niður eða neitt áður en þau elda það, rosa flott. Það var rosa flottar sýningar þarna og glæsileg leið til að enda ferðina. Biðst afsökunar á hvernig ég setti þetta saman ég nenni bara ekki að skrifa alveg nákvæmlega hvað gerðist alla dagana.
Viku eftir að ég kem heim þá förum við skiptinemarnir í ferð saman í Death Valley sem er vel þekkt eyðimörk hérna. Rosa skemmtileg ferð fannst við bara sjá svolítið mikið af því sama þar sem að það er ekkert sérstaklega mikið á sjá þarna haha, en hótelið okkar var bara alveg á ríkismörkunum við Nevada svo núna hef ég komið í 6 ríki. Seinsta daginn fórum við í nammi búð og ótrúlegt en satt þá voru þau með lakkrís og alveg svona góðan lakkrís! En þessi ferð var ekkert smá skemmtileg og svo gaman að vera með hinum skiptinemunum mínum.
Vikuna eftir fer ég til LA til að hitta frænku mína Unni sem býr í LA þannig ég fékk að eyða páskahelginni með henni. Þegar ég kem úr lestinni tekur hún á móti mér og við förum í búðina að versla smá mat til að gera samlokur og ég var alltaf að reyna að spurja hana hvað við værum svo að fara gera og svo tekur hún mig á svona lítinn flugvöll þar sem vinur hennar og annar maður bíða eftir okkur og hún tekur mig í svona litla 4 sæta flugvél og við fljúgum yfir allt LA og ég sé bókstaflega allt þetta var svo gaman, brosið fór hreinlega ekki af mér. Kvöldið förum við svo á LA live og hún býður mér á rosa flottan sushi stað og svo allt í einu.. inn kemur enginn annar en Terry Crews !! Eftir matinn förum við í bíó og hver er þar ? Perez Hilton ! Daginn eftir erum við bara latar til svona 2 og svo keyrum við um í ríka hverfinu og ég sá Bruno Mars og Kim Karadashian keyra ! Óhætt að segja að frænka mín sló alveg í geng þessa helgi !
Apríl
Ég tók þátt á áheyrandaprufum fyrir GT got talent í skólanum mínum því að besta vinkona mín bókstaflega neyddi mig til þess, en ég komst áfram og er keppnin sjálf í næstu viku. Svo seinasta fimmtudag þá var ég mer fyrirlestur í skólanum mínum um skiptinema og hvernig það er að vera skiptinemi og fékk 2 AFS stelpur til að vera með mér og svo einn af AFS sjálfboðaliðunum kom og talaði líka en hann var svo sáttur með mig og fyrirlesturinn sem ég gerði að hann ætlar að að hringja í AFS í NY sem er yfir öllu og honum lagar að fara með þetta í aðra skóla.
Í gær þá fórum við á Medieval times sem er sýning sem þú ert smá kominn aftur í tímann með riddurum og svona, rosa gaman og ekkert smá flott og fjöldskyldunni minni finnst svolítið gaman að gera mig vandræðalega og þegar þau voru að kalla upp fólk til að heiðra þau svona þegar kóngurinn er með sverð og fer yfir axlirnar á þér já þær skráðu mig niður og ég fór fyrir framan allt þetta fólk, ég var eins og tómatur í framan en þetta var bara gaman. Ég er engin svaðaleg hesta mannsekja en hestarnir á þessari sýningu.. Vá þeir voru svo fallegir!
En þetta er svona megið af þessu sem ég er búin að vera gera. Skólinn er búinn lok maí og planið að fara til Las Vegas í júní og vera í einhverja viku. En það styttist svakalega í að ég komi heim bara sirka 2 og hálfur mánuður eftir sem eru bara 10 vikur.
Meira var það ekki





