Á afmælinu mínu gerði ég eginlega ekki neitt talaði við mömmu,pabba og Söru á Skype og horfði á sjónvarpið en svo um kvöldið tóku þau mig á Cheesecake Factory og var eins og að allir ættu afmæli þennan dag! En svo helgina eftir þá buðu þær systur u.þ.b 20 manns í afmælis partý og megnið af fólkinu þekkti ég ekki og hafði aldrei hitt áður en það var samt rosa gaman. Elduðu rosa góðan mat og keyptu handa mér Barbie köku það sem það s.s búið að stimpla mig sem Barbie.
Jólin voru eitthvað annað!
24.des gerðum við ekkert ! Ég var ógeðsleg og í náttfötunum allan daginn en við spiluðum reyndar aðeins um kvöldið. En 25 vöknuðum við snemma og opnuðum pakka. Ekkert smá sátt við það sem ég fékk m.a. myndavél, Sif Jakobs, úr og svo gáfu þær mér svona kit til að gera Smorse's. Seinna um daginn fórum við í matarboð til ömmu og afa og þaðan í bílabíó. En jól í Bandaríkjunum er samt rosa flott því það er svo mikið skreytt hérna og all out! Ég fór sem sagt með skiptinemunum í annan bæ sem er c.a 30 mínútum frá mínum bæ í ákveðið nágreni þar sem þau skreyta bilað mikið og ekkert smá flott!
Áramót
Reagan vinkona mín kom til mín og við borðuðum allskonar óhollustu og horfðum á myndir og höfðum það bara voða kósý en þetta var mjög leiðinlegt og ekkert eins og heima þetta hefði þess vegna getað verið bara venjulegt þriðjudagskvöld. En við biðum þangað til að klukkan yrði 12 svo við gætum farið að sofa (Held að ég hafi aldrei beðið eftir að klukkan yrði 12 á áramótum svo ég gæti farið að sofa nema á ungum aldri) En við þurftum reyndar að vakna snemma eða kl 5 um morguninn því að á hverjum nýárs degi er The Rose Parade í öðrum bæ ekki svo langt frá en við þurftum að vera komin í Upland fyrir kl 7 til að hitta hina skiptinemana og fara þaðan á skrúðgönguna en það var reyndar ekkert smá flott en rosa langt!
Super bowl!!
Ótrúlega gaman! við fórum reyndar ekki í neitt teiti eins og sumir gera en það var alveg fínt við fórum í búðina og keyptum allskonar rétti,nammi,snakk o.fl en leikurinn var eitthvað annað hef sjaldan æst mig svona mikið yfir leik! Það var stutt í tár.. En liðið mitt vann á endanum en ég hélt sem sagt með Baltimore Ravens en næstum allir hérna héltu með 49'ers því að þeir eru í San Francisco sem er hér í Cali. En ég er líka búin að fara til San Diego og við fórum og skoðuðum The Midway sem er gamalt Navy skip og ekkert smá stórt þannig það fór alveg heill dagur í að skoða það en rosa áhugavert samt að skoða. Það voru líka rosa margir ferða menn þarna og ekki bara Kínverskir ferða menn sem er ekki sjaldséð sjón haha! En við hittum par frá Póllandi og Bretlandi og Svíþjóð.

Sjúkraþjálfun
Í jólafríinu gerðist eitthvað við bakið mitt og ég hef ekki hugmynd hvernig ég fór að því sem gerðist við bakið mitt. Ég semsagt snéri mjöðmunum mínum úr stað og eru þær ekki á réttum stað, með þessu fylgdi að neðstu hryggjaliðarnir snérust eitthvað úr stað líka og með þessu öllu þá fór ég að því að vöðvarnir í kring um bakið og mjaðmirnar og í löppunum stífnuðu og fóru saman eða eitthvað svoleiðis (Biðst afsökunar á ótrúlega erfitt með að útskýra þetta). En sjúkraþjálfun er að hjálpa mér rosa mikið sem er æði. Já og eftir hverja ''æfingu'' tengja þau mig við þetta tæki sem nuddar á mér bakið á meðan ég er í kælingu.. Himnasending þetta er svo gott!
Valentínusardagur
Ef það er eitthvað over the top hérna í USA þá er það Valentines day! Verslanir byrjuðu að selja Valentines hitt og þetta í desember. Valentines day var eins og það væru allir par en það er reynar frekar algengt að krakkar hérna byrji saman til að vera saman á Valentines og hætta svo saman stuttu seinna. En það var önnur hver stelpa með bangsa á stærð við þær sjálfar og 10 blöðrur,nammi og blóm. Og það sem fólk gerir til að til að spurja hvort annað um að vera Valentine... En þetta var svo sem fínn dagur haha. Hér á myndinni fyrir neðan spurði strákur eina stelpu um að vera valentines-ið sitt á körfuboltaleik í skólanum.
Annað
Ég fór til Hollywood seinasta mánudag í Universal Studios, rosa gaman en fannst garðurinn ekki eins flottur og í Florida en eina sem þessi garður hafði yfir Florida var að þau eru með svona túra sem þú færð að skoða film set og sjá sumir fræga að filma en ég ver ekki svo heppin en sá svo mikið og flott. HAWAII eftir 14 daga !!!!! Er að missa mig er svo spennt. og vikuna sem ég kem heim fer ég til Death Valley með skiptinemunum í 3 daga að skoða en vikuna eftir það er planið að fara til Las Vegas þessar tvær vikur er ég í Spring Break. Þannig ég fer bara eina viku í skólann í mars! Svo 11. apríl þá ætla ég og vinonur mínar frá Sviss og Danmörku að halda fyrirlestur í skólanum mínum um skiptinema nám í öðru landi með AFS, sem vonandi á eftir að ganga vel. Held að þetta sé gott í bili en ég vil biðjast afsökurnar ef það eru stafsetningarvillur, ekkert smá skrítið hvað ég er búin að gleyma Íslenskunni en það er kannski ekki skrítið þar sem ég er voða lítið búin að skrifa eða tala Íslensku seinustu 5 mánuðina.
Meira var það ekki.





No comments:
Post a Comment